HomeExperienceLeisureRósukotLinks

 

IMG_8198.JPG

Við þurftum svo að rífa allt gólfið líka, því burðarbitarnir voru rotnaðir neðanfrá. Kom í ljós að vatn frá brekkunni ofan við húsið - þrengdi sér leið undir þennan hluta af húsinu, svo það var sífelldur raki undir gólfinu allt árið.

Sýnishorn af framkvæmdum með baðherbergi og geymslu, Rósukoti í Jondalen.  Hér erum við búin að fjarlægja sturtuvegg sem var innan við gluggann (sturtu"klefinn" var þar sem rauði dúkurinn er á gólfinu, fyrir miðri mynd).  Búin að taka niður gamlan gasdrifinn vatnshitara sem var þar áhangandi (þar sem svarta rörið kemur niður úr miðju loftinu) og byrjuð að rífa millivegginn milli baðherbergisins og geymslu.  Nýr milliveggur kemur svo lengra til vinstri (stækka baðherbergið) ásamt því að við setjum upp útihurð milli gluggana, til vinstri við gluggann hægra megin á myndinni.
 
Loftaklæðningin sem sést á þessari mynd, var svo öll rifin líka burt - til að oppna alveg upp að sjálfu þakinu.  Þar ætlum við svo að einangra og klæða aftur, þannig að það verður meiri lofthæð á bæði baðinu og geymslu - eftir breytingar. 

IMG_8647.JPG

Smá gólfstubbur eftir sem Jón stendur á, Rósa mundar kúbeinið - íklædd fullum herskrúða. Júní 2025.

Hér erum við búin að saga burt megnið af burðarbitunum, nokkrir "stubbar" eftir vinstra megin á myndinni - þeir voru svo látnir halda sér til að halda betri styrk þegar við settum alveg nýja burðarbita yfir allan flötinn, vegg í vegg milli steyptra veggja í sökklinum.  Við mokuðum svo út mörgum rúmmetrum af jarðvegi (sem Rósa stendur á) til að minnka rakamöguleika.  Sumsstaðar voru bara 10-15 cm frá neðri brún á burðarvirki í gamla gólfinu, niður á jarðveginn undir - svo allt rotnaði burt, bæði burðarbitar og undirlag í gólfinu.  Grófum einnig alveg niður að kletti við útvegginn aftan við Rósu og Jón steypti svo fyrir allar glufur þar á milli - svo það kæmist minna af vatni innum vegginn.

IMG_9251.JPG

Burðarvirki fyrir gólfið, 2x6 tommu gagnvarið - til að þola raka betur í framtíðinni.

Hér eru svo komnir nýjir burðarbitar fyrir allt gólfið, ca. 60cm bil á milli þeirra og hver burðarbiti er ca. 3 metrar á lengd.  Ef vel er að gáð sést meira rými undir gólfinu - eftir að við mokuðum út helling af jarðvegi og steinum, svo það loftar betur um allt.  Settum einangrun innaná sökkulinn líka, svo kotið haldi betur hita yfir veturinn.  Komið hurðar-gat í vegginn milli glugganna hægra megin, hér með bráðabirgða-útihurð.  Verður svo alvöru útihurð með læsingu, frá baðinu út á lítinn pall sem við ætlum að gera þarna utan við (bakatil á húsinu).  Þar dreymir Rósu svo um að koma upp gufubaði og útisturtu, einhverntímann á næstu árum.

IMG_9300.JPG

Gólfbitar, komnir með burðarvirki undir til að halda asfalt-plötum (rakavörn) og einangrun ofaná þeim, 10cm steinull milli burðarbitanna.

Hérna erum við svo búin að styrkja burðargrindina með þverbitum í miðjunni - til að stífa af.  Einnig komnir dregarar undir allt saman, gagnvarið pallaefni með ca. 4-5 cm millibili og svo ofan á það koma "asfalt-plötur" sem eiga að hindra raka í að komast upp í gólf-virkið, en samt að hleypa raka niður í sökkulinn ef það skyldi komast bleyta í einangrunina sem var svo fyllt uppí milli burðarbitanna.

IMG_9335.JPG

Hér eru komnar asfalt-plötur yfir allt gólfið og einangrun ofaná þeim, 10cm steinull til að halda betur hita í kotinu.

Hérna erum við svo búin að setja allar "asfalt-plötur" og svo fylla upp milli burðarbitanna með einangrun.  Settum einnig nokkur rör gegnum gólfið, fyrir sturtu lengst til vinstri - svo fyrir baðvask sem er röstubburinn lengst til hægri.  Settum svo einnig rör gegnum gólfið fyrir miðju, fyrir pissuklósett (urinal) og svo eitt að lokum í hornið á geymslunni sem vara loftun eða ef það þyrfti að komast skemmstu leið í niðurfallið út gegnum sökkulinn (sem er þar undir - undir hvítu plötunni ofarlega fyrir miðju).

IMG_9483.JPG

Komnar gólf-fjalir yfir nánast allt gólfið, maður sér niðurfall fyrir sturtu til vinstri og "urinal" fyrir miðju (verður við millivegginn, þegar hann kemur upp aftur).

Hér eru svo komnar nánast allar gólf-fjalirnar á gólfið, vantar bara eina og hálfa breidd lengst til hægri meðfram veggnum - sem sett var á daginn eftir.
 
Allt gólfið var svo olíuborið með valhnotu-brúnum lit og svo vax yfir alltsaman sem auka styrk fyrir notkun í framtíðinni.

IMG_9503.JPG

Komnar gólf-fjalir yfir nánast allt gólfið, maður sér niðurfall fyrir sturtu til vinstri og "urinal" fyrir miðju (verður við millivegginn, þegar hann kemur upp aftur).

Að lokum er svo Rósa búin að olíubera allt nýja gólfið.
 
Eftir að þessi mynd var tekin, höfum við svo einnig skipt út gluggunum - sett upp alvöru (nýja) útihurð í hurða-opið og einangrað alla útveggina uppá nýtt, ásamt því að setja rakavarnarplast (byggingarplast) yfir alla einangrunina.
 
Næstu skref er svo að setja upp millivegg milli baðsins og geymslu, "lektur" yfir burðarbitana á öllum veggjum og veggklæðningu yfir það.  Svo ætlum við líka að einangra allt loftið undir þak og klæða yfir með lofta-panil.  Þá fer að verða hægt að koma upp gas-klósettinu sem er uppfrá, ásamt urinal og handlaugarskáp með vask sem við keyptum í IKEA á dögunum.  Einnig er þá klárt fyrir sturtuklefa, lengst til vinstri sem verður þá á vinstri hönd þegar maður kemur inn á baðherbergið.

Jón Arnarson

Rósukot í Jondalen